30.4.2009 | 02:23
Og Kolbrún vill síðan halda ráðherrastólnum!
Ég held að Kolbrún blessunin ætti að skoða það sem nokkuð ákveðna vísbendingu að u.þ.b. 24,5% vildu hana ekki en vildu samt flokkinn hennar. Það væri skandall ársins ef að henni byðist að halda ráðherra embættinu.
Skondið að hún skuli ekki vera búin að setja út á nafngiftina "ráðHERRA" eftir að hún fékk stólinn.
Össur var næstur falli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það er meira passandi orð yfir hana til, " RÁÐHERFA"
Ragnar Örn Eiríksson (IP-tala skráð) 30.4.2009 kl. 03:28
Sæll Aðalsteinn.
Satt mælir þú.
Maður sendir ekki börn í HEYHLÖÐU með eldspýtur !
Kveðja.
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 30.4.2009 kl. 04:35
Eru konur sem eru umhverfisverndarsinnar -alveg í sérflokki hjá ykkur körlum?
María Kristjánsdóttir, 30.4.2009 kl. 07:15
Sæl María.
Ég hef ekkert á móti konum né þeim sem er annt um umhverfi sitt. Mér finnst hinsvegar Kolbrún ekki eiga neitt erindi á þingi hvað þá í ráðherrastól. En það er bara mín skoðun. Hinsvegar er ekki hægt að líta fram hjá þeirri staðreynd að af þeim sem að kusu VG í kjördæmi Kolbrúnar var stór hluti sem að strikaði yfir hana eða færði hana neðar á listanum. Það hljóta að vera ákveðin skilaboð.
Aðalsteinn Baldursson, 30.4.2009 kl. 07:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.