Það er aldeilis.

Hvað kemur næst? Moskítóflugur drepnar með haglabyssum?


mbl.is Stríð við jarðíkorna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mannlegur?

Það held ég að sé réttur leikur hjá karlinum að gera hreint fyrir sínum dyrum strax í byrjun til þess að þetta komi ekki í bakið á honum.


mbl.is Nýr ríkisstjóri játar syndir sínar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óhugnaleg þróun.

Þetta er enn eitt dæmið um það hvernig fáir einstaklingar koma óorði á heilan hóp. Að sjálfsögðu þarf að taka á þessu með hörku, gera þessum ruddum það ljóst að þetta verður ekki liðið. En það er viðbúið að það verði erfitt því að mér finnst líklegt að fáir þori að kæra þessa hluti.


mbl.is Innheimtu verndartoll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er greinilegt að maðurinn var í bráðri hættu.

Enda "neyddist" hann til að stinga fyrrum tengdaföður sinn og eiginkonu margsinnis til þess að vera viss um að hann væri úr allri hættu.
Hvurs lags ands...... kjaftæði er þetta? Heldur maðurinn virkilega að einhver trúi þessari frásögn?
mbl.is Árásarmaður í Danmörku ber við sjálfsvörn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig var þetta athugað?

Það er greinilegt eftir þessu að dæma að helvíti er ekki það sama og helvíti!
mbl.is Helvíti andlegt frekar en líkamlegt?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og hvað með það?

Mér hefði fundist það jafn (ó)merkillegt ef að hundrað breskir kaupsýslumenn hefðu þurft að millilenda hér á landi vegna bilunar í búnaði.
mbl.is Hermenn á heimleið millilentu á Íslandi vegna bilunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er mál til komið að gera eitthvað róttækt.

Eina vitið er að gera göng undir Lónsheiðina ÁÐUR en að einhver slasast alvarlega eða deyr í Hvalnesskriðunum.
mbl.is Vegi lokað um Hvalsnes vegna mikils sandfoks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru þetta ekki eldgamlar fréttir?

Ég hélt að það hefði engum dulist í gegn um aldirnar að húðstrýkingar og krossfestingar færu ekki vel með menn. En hvað veit ég svo sem?
mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bin Laden fordæmir sjálfan sig.

Öfgatrúarmenn, sama hvaða trú þeir kenna sig við, eru alltaf og munu verða öfgamenn. Bin Laden og öfgafullir múslimar fordæma myndbirtingar á sama tíma og þeim finnst sjálfsagt að meiða og drepa þá sem ekki eru þeim sammála og einnig að eyðileggja það sem þeir telja sinni trú ekki samboðið.
En málið er það að þessir öfgamenn eru hvorki betri né verri en öfgamenn annarra trúarbragða. Horfið t.d. á myndina Jesus Camp og dæmið svo fyrir ykkur. Annað dæmi er síðan "vísindakirkjan". Vísindaskáldsagnahöfundur náði að koma þeirri hugmynd inn í kollinn á hópi af fólki að andar myrtra geimvera væru valdir að hverskyns andlegum og líkamlegum kvillum. Þeir sem að mótmæla því opinberlega eru rakkaðir í svaðið af geimveru-unnendunum og lögsóttir fyrir ýmsar skáldaðar sakir.

Já það er vandlifað í þessum heimi.


mbl.is Bin Laden hótar Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er eins gott að passa sig.

Það er greinilegt að menn þurfa að hugsa sig vel um í þýskalandi áður en þeir viðurkenna hvaða menntun þeir hafa. Wink
mbl.is Refsivert titlatog
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband