Af hverju ekki?

Af hverju má ekki borða hvalkýr eins og aðrar kýr, sé ekki muninn.
Þegar hvalveiðibann var sett á á sínum tíma var kannski full þörf á því. En núna þegar hvalastofnar hafa náð sér að fullu þá snýst málið ekki lengur um að vernda stofna í útrýmingarhættu heldur er verið að níðast á greindum tilfinningaverum sem að mega sín lítils gegn mannskepnunni. En hvað næst? Eigum við að hætta að veiða þorsk og loðnu, eins og sumir öfgasinnar vilja, til þess að taka ekki matinn frá greyið hvölunum? Hvalafriðunarsinnar hlusta ekki á sérfræðinga sem segja stofnana vera orðna nógu stóra til að veiða úr þeim, þeir vilja ekkert heyra nema það sem þeim hentar.
Áfram hvalveiðar.
mbl.is Hvetur Íslendinga til að virða bann við hvalveiðum í atvinnuskyni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað með lest?

Mér er spurn!


mbl.is Hvergerðingar vilja strætó austur fyrir fjall
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veruleikafirring stjarnanna.

Mér finnst það hljóma hálf kaldhæðnislega að í Íslenskri þýðingu er þessi hópur kenndur við vísindi og kirkju. Í mínum huga er kirkja hús Guðs kristinna manna og þessi söfnuður á svo sannarlega ekkert skilt við kirkjur í þeim skilningi né við vísindi. Um er að ræða vísindaskáldskap sem að á einhvern furðulegan hátt hefur náð tökum á fjölda manns.


mbl.is Nýjar stjörnur í Vísindakirkjunni?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég ætla að prófa mig...

...áfram hérna, aðallega til þess að geta tjáð mig um fréttir á mbl.is. Hvort og þá hversu mikið vit verður í þessum skrifum hjá mér á eftir að koma í ljós.

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband