Ekki að spyrja að ruglinu .

Bandaríkjamenn mega eiga eins mikið af byssum eins og þeir vilja, ganga með þær á sér (víða) og fylla heimili sín af þeim. Samt skilja þeir ekkert í því að krakkarnir koma höndum sínum yfir þær og skokka með þær í skólana. Kannski væri réttast að skylda alla skólakrakka til að vera vopnuð í skólunum til þess að geta skotið á móti þegar einhver "klikkaður" dregur upp sína byssu. Bandit = W00t = Crying = Bandit
mbl.is Réttur Bandaríkjamanna til skotvopnaeignar staðfestur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Skattborgari

Góð hugmynd en myndi morðum í skólum ekki fjölga þegar allir eru vopnaðir byssum?

Skattborgari, 26.6.2008 kl. 20:22

2 Smámynd: Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir

Það er spurning um fælingarmáttinn!

Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir, 26.6.2008 kl. 20:35

3 identicon

Það er til eithvað sem heitir byssuskápur sem á að koma í veg fyrir þetta. Ég er á móti því að fólk geti komist yfir sjálfvirka rifla (hríðskotabyssur) og sprengjuvörpur en skambyssur, hálfsjálfvirkir riflar, og allar gerðir að hagglabyssum. Byssulögin á íslandi eru mjög oft út í hött. Kynnið ykkur þetta og þið komist að því.

Skarphéðinn Þórsson (IP-tala skráð) 26.6.2008 kl. 23:43

4 Smámynd: Alexander Kristófer Gústafsson

 Ég tel að sjálfvirkir riflar(vélbyssur)eiga að vera löglegar(m16 og ak47 tildæmis) aftur á móti mundi ég styðja bann við sprengjuvörpum.

Alexander Kristófer Gústafsson, 27.6.2008 kl. 00:27

5 Smámynd: Aðalsteinn Baldursson

Það er stundum erfitt, kæri Skattborgari, að láta kaldhæðnina skína nógu vel í gegn í ritmáli.
Ólöf, hvaða fælingarmáttur? Ef að allir ganga um með vopn þá hugsa menn bara um það að vera sneggri að draga en andstæðingurinn.
Skarphéðinn; auðvitað eru byssuskápar af hinu góða. En ég er ekki að sjá það fyrir mér að bandaríkjamenn noti þá þegar þeir þurfa að hafa byssuna því sem næst undir koddanum til þess að geta "varið" sig.
ef að menn eru á annað borð komnir með sjálfvirk vopn Alexander hvaða máli skiptir þá hvort að menn eru með sprengjuvörpur líka?

Aðalsteinn Baldursson, 27.6.2008 kl. 00:56

6 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Leyfum bara öllum að ganga um með skammbyssur.  það versta sem gæti gerst er að miðbæjarfylleríin minnka umtalsvert.  (Hver vill vera innan um ölvað fólk með byssur?)

Ásgrímur Hartmannsson, 28.6.2008 kl. 10:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband