Eru fjölmiðlar að stuðla að óeirðum í landinu?

Er það hugsanlegt að fjölmiðlarnir okkar séu að búa til vandræði. Í DV í gær var grein um að Björn Bjarna væri að vígbúa lögregluna vegna hugsanlegra óeirða. Áfram er síðan haldið í dag með því að sýna mynd af sérútbúinni bifreið sérsveitarinnar og gefið í skyn að bifreiðin sé gerð til þess að bæla niður óeirðir. Í greininni í gær var að vísu sagt frá þessari bifreið og þess getið að hún væri útbúin til þess að sérsveitarmenn kæmust inn um glugga á annarri hæð. Ég sé að vísu ekki hvers vegna það á endilega skylt við óeirðir. Í frétt á mbl.is í dag kemur síðan í ljós að þessi bifreið er síður en svo ný þannig að ekki var verið að sérútbúa hana gegn óeirðarseggjum eins og leitt var að líkum í DV.
Ég ætla rétt að vona að það sé algert bull í mér að það sé verið að spinna upp einhvern vef til þess að æsa upp í fólki en hvað á maður að halda?
Ég hef ekki heyrt neitt í kring um mig þess efnis að maður gæti ætlað að óeirðir séu á næsta leiti, en kannski ætti maður bara að passa sig að vera ekki að þvælast of mikið nálægt miðborginni, bara til að vera viss Wink.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll; spjallvinur kær !

Nei. Þótt fjölmiðlar hafi; um langt skeið, engan vegin valdið upplýsinga hlutverki sínu, þótt þeir hafi þókst gera það, að nokkru, að þá er ólgan alfarið; fyrir tilverknað stjórnmálamanna - bankamanna ýmissa, og meðreiðarfólks þeirra.

Sjáðu til; Aðalsteinn minn. Hví; í ósköpunum, var ekkert gert, allt heila sumarið nýliðna, til þess, að sporna við þeirri eyðileggingu, sem hverjum óbrjáluðum manni mátt ljós vera, með skefjalausri óstjórninni ?

Dæmi : Keila (fiskurinn)er verðmætari en verðbréf /

             Sauðkind er; slíkt hið sama /

             Álklumpurinn (þótt umdeildur sé) er það einnig /

Tæpast; að þurfi nokkurra rökræðna við, þar um.

Með beztu kveðjum, sem ætíð /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 7.11.2008 kl. 23:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband